Að vera einn á ný,
finna frelsi mitt sem aldrei var.
Að eiga bara spurningar
en aldrei nokkurt svar.

Að vera einn á ný
aldrei þurfa að fela neitt
að geta horfst í augu við
að geta engu breytt

Að vera einn á ný,
tilgagnslaus hverfa á burt.
Þá þarft þú ekki að svara
því sem ég hef spurt.

Að vera einn á ný,
ekkert að gefa.
Reyna árangurslaust í myrkrinu
sorgir að sefa.

Að vera einn á ný
aldrei að þurfa að líta á þig.
Ekki oftar biðja þess
að þú skiljir mig.

Að vera einn á ný
eiga ekkert eftir
verða kafli í sögubók
kaflinn sem þú slepptir.
Gríptu karfann!