Ískallt
vil ekki sleppa hlýrri sænginni
en staulast samt á fætur
orðin sein
hef engan tíma fyrir morgunmat
fer strax út að skafa
brrr, brrr
fingurnir frosnir
og kalt inni í bílnum
tekur langan tíma að hitna
finn ekki fyrir tánum
svo biluðu rúðuþurrkurnar
og ég sá ekki neitt

Mig langar til útlanda
þar sem er hlýtt
og ég get orðið brún
án þess að borga í ljósabekk
iljað mér í sólinni
og horft á fáklædda stráka
ekki þarf að skafa af bílum
og ekki verður mér kalt á tánum