gætum við sest aðeins niður,
og horft á hina sem þramma um götur
fúlir yfir því að vera ekki fremstir
í lífsgæðakapphlaupinu
og verða það aldrei

gætum við sest aðeins niður,
og horft á hina sem sitja líka
neita að taka þátt,
enda svo sveittir með bjórvömb
þegar ábyrgðin hlammar sér í fangið á þeim
fyrir sjónvarpið og öskrar: Steinþegiðu!
Líf þitt er búið!

alla vega, setjumst aðeins niður á milli þessara ólánsmanna…