Ég vorkenni þeim sem voga sér að ráðist inn í landið mitt
við höfum nefnilega bestasta her í heimi
þetta er kannski dálítið skrítinn her
því
stærð herdeildarinar er mæld í hversu mörgum bílum hún kemur í
og
herfylkingarnar skiptast í hvernig tónlist er hlustað á
en
við erum vel vopnum búin:
alsjálfvirkir amerískir bíómynda frasar og fimmauraeldflaugar
við höfum háþróað samskiptakerfi:
dulkóðuð ókrisnileg SMS skilaboð og rauntíma flæði upplýsinga með GSM
við notum nútímaleg farartæki:
dökk film'aðir bryndrekar búnir 500(W) fallbyssum og FM 9.57 skotum
samt
útaf því það er enginn sameiginlegur óvinur snúast allir gegn hverjum öðrum
eins
og
þegar
hermaðurinn gekk að mér
skaut hann mig með kúrekastígvélum og ísumíboxi
og með rauntíma miðlunartækinu
boðaði hann deildina sína að mæta á staðinn
tugir álfelgaðir skriðdrekar komu
og sprengdu í loftu asnadregnu kerruna mína

Samt besti her í heimi!