Góða kvöldið.
Mig langar að panta draum.
Ég vil geta flogið og ég vil að allir vinir mínir séu þar og sjái það.
Þau eiga að dást að mér.
Uppseldur í kvöld, segirðu?
Láttu mig þá hafa draum þar sem ég er ofurhetja.
Helst einhver sem getur flogið, eða sveiflað sér hátt.
Uppseldur líka?
Það er ekki að spyrja um úrvalið í kvöld.
Gemmér þá draum þar sem ég er sjóræningi og berst við skrýmsli.
Þá vil ég fá draum þar sem ég er vampýrubani í smábæ fullum af vampýrum.
Heyrðu, tala við dýr, get ég fengið það?
En get ég þá verið dýr?
Láttu mig þá fá draum þar sem ég er kóngur í neðansjávarríki.
Geturðu breytt mér í dverg?
Eða hobbita?
Áttu það?
Get ég verið einhver frægur?
Af hverju áttu ekki neitt af því sem ég bið um?
Ég vil fá draum!
Komdu með drauminn minn!
Ég á rétt á því að dreyma eins og aðrir!
Þú getur ekki ætlast til að ég loki bara augunum og fari að sofa!
Takk.
Góða nótt.
"