Jæja mér finnst heimurinn vera dulítið skringilegur þessa dagana þegar allir bomba alla og litlu sætu dýrin horfa á blessuð litlu börnin og alla þessa hryðjuverkamenn leika sér með bomburnar sínar og önnur leikföng sem sköpuð eru í þeim tilgangi að myrða saklaus börn og gamalmenni sem hlaupa um í göngugrindum og reyna að forða sér undan bílum sem keyra alltof hratt og innihalda manneskjur sem að eru að drífa sig til að sjá einhverjar myndir í kvikmyndahúsum þar sem að þeir upplifa sælustundir séðar í gegnum augu leikara sem fá svo miklu meira í árslaun heldur en allir forstjórar tölvufyrirtækja í veröldinni þar sem einræði er smám saman að ná tökum á litlum og sýktum heilum stjórnmálamanna sem einnig laumast til að níðast á litlum krökkum og halda framhjá í gríð og erg líkt og þeir fengju borgað fyrir það en það er einmitt málið sem að allir spyrja sig um hvort að þeir væru virkilega eitthvað hamingjusamari ef þeir ættu peninga og þyrftu að hafa áhyggjur af því að einhver rosa drjóli með haglabyssu sem framleidd er af barnaþrælkurum í Asíu myndu ráðast inn í stóra húsið sem reist er af sama fyrirtæki og lagði alla þessa olíuborna vegi um löndin og choppaði niður trén í þeim tilgangi að rækta meiri dóp fyrir aumingja sem nenna ekki að vinna og sitja þess í stað í einhverjum gatslitnum sófa undir sæng og horfa á ofbeldisfullt sjónvarpsefni sem kennir einmitt öllum börnum þessa heims að ríða eða kýla alla aðra krakka í andlitin sem að vaxa senn upp í fullorðin smetti með bólum og tilheyrandi sem að þau meika yfir með farða sem búinn er til úr sandinum sem tekinn var úr hlíðunum austan við fjall og orsökuðu það að stór hola er komin inn í landslagið sem mun aldrei bíða þess bætur og verður þannig um aldur og ævi hvers einasta manns sem óskar þess verða gamall en reykir samt og drekkur áfengi í von um það að finna hamingju í þessu “vonandi” langa lífi sem hann vill upplifa og drekkur þess vegna appelsínudjús á milli mála í von um betri heilsu…

Fuck it…
Ég er farinn í sturtu
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.