Ég græt ekki vegna þín
né neins annars.
ég græt ekki vegna einhvers
sem gerðist.
Tár mín svo ein
leka niður vangan

vegna einhvers sem ég fæ ekki
skilgreint

Svo ótrúlegt tóm
hefur skapast í sál minni.
Eins og allt sem áður var
hefur lagt á flótta
undan kvöl minni…

Tindrandi stjörnuhrap
ég hef gefist upp
á því að lifa…..