ég finn fyrir freistingu holdsins,
þegar þú ert nálægt mér,
ég finn fyrir brennandi fingurgómum mínum
sem leita af þér,
þú horfir lýkt og stjarfur á mig,
á meðan leita ég að því sem ég vil,
augu mín eru á þér öllum,
ég bíð eftir að þú hreifir þig,
þú snertir mig varlega
líkt og ég hverfi frá þér,
ég væti varir mínar,
nálgast varir þínar,
við kyssumst djúpum heitum kossi,
og þá vakna ég,
það er eins og heimurin vilji ekki að ég eignist þig,
sérstaklega þar sem ég ekki veit hver þú ert,
andlit þitt geymist í huga mér,
þar sem þú ert sá sem ég leita af.