Bústnar og sællegar býflugur.
Einn vesæll geitungur,
öskrandi smástelpur.
Hálsmál úr vöffum og berir leggir.
Ástleitnar meyjar og blístrandi steggir.

Glampandi sól og skólaslit
grasið og laufin í grænum lit.
Óvarið kynlíf og börn undir beltum
við ölverði bölvum og ísana meltum.

Börn á hjólum tveimur til fjórum
mæður á róandi og þrem stórum bjórum.
Eldhnöttur gulur sem aldrei sests
af hagléli í maí við eigum mest.