Hjartað berst með þunga
áfram, það leitar áfram
stjórnlaust, til hvers
reynir að stöðva ganginn
hjá hjartanu
en gengur ekki,
lífið heldur áfram
maður lifir í kvöl
innilegri kvöl sinni
grátur og tár,
sorg og reiði,
enginn hlustar,
og hjartað berst
sama hversu mikið maður óskar þess
að það stoppi,
hætti þessi veseni,
leyfi manni að sleppa,
fara, hverfa, gefast upp,
hætta þessu,
en hjartað hlustar ekki,
það berst áfram,
það berst fyrir lífi þínu.