Með fullan huga
steyptan í gamlan tíma
það sem var
endurspeglast í dag.
Ég lít
ófullkomnar minningar
svo tregar
andardráttur minn svo þver
Ég gef
það sem ég hef ekki að gefa
lít fyrir þinni sýn.
Örmögnuð af þorsta
til betra lífs
og svo þreytt
þreytt á því að vera….

Mógrátt auglit
feimin sál
djúpt í örmum þínum,
haltu mér fast
þú frostkulna jörð
svo sál mín losni
frá líkamanum…
Mín orð, frá munni ei berast meir
og hönd mín hætt að rita -
Því fegur lífsins ég að mér saug
með dauða……