Mér blöskrar það að þessi maður skuli rífa kjaft í fjölmiðlum í sambandi við bruðl utanríkisráðuneytisin (sendirráðið í japan) og hroki hans gagnvart gagnrýnismönnum kvótastefnunnar. Hér er mín skoðun á honum.


Reikar hastur maður
fastur
í heimi háðskum heimskum

á alla hrækir
krækir
höndum sínum heldur

rignir móti köldu blæs
ólæs
á orð sem gegn sér skrifast

Vaðar villu blindur
ósyndur
í söltu feni lyginnar.
—–