Þú ferð ekkert frá mér
áður en ég fer til fjandans
ég skal brenna mig á báli
með klónuðu kefluðu káli

rotandi hold hálvita hersins
rennandi blóð sms menningunar
útskörp, innhverf undrabörn
þau elta mig út og inn um allar trissur flissandi
innsprunginn geimur, ekkert eftir

það er bannað að bakka á gaura og staura
það er bannað að gefa rónum aura og maura
þú mátt ekki borga minni skatta en næsti maður
pyngjan er tóm og rödd fátæktarinar ómar!
Ómar lánaðu mér klink til þess að kaupa mér veraldleg gæði
lazy boy og innsokkna grjóna stóla fyrir svín nútímans
sem elta mig í draumum sínum eftir að maðurinn með
pétursskarðið og almannagjána kemur
og drepur mig með hlutum sem eru víðsfjarri gömlum tímum

salt skallar og pipar púkar ætla að myrða mig með mörgum metnaðargjörnum milliliðum
morðingjum margra manna
margslungrum mæðrum með pappamassa
sem múra mig inni í rauðum ástarsögum fyrir meðfædda guiding light aðdáendur..

Lujack! Afhverju má ég ekki verið eins og þú?