Það eina sem hann átti Ég veit að ég er ekki allt
Ég er bara það sem hann gaf mér
Ég er ekki fullkomin
Ég er ekki fullgerð

En ég er komin með hjarta
og er með brot af anda hans
Í höndum mínum, fingrum mínum
Í hjartanu sem mér var gefið

Ég veit að þú þurftir ad fara
Ég veit að þú ætlaðir ekki
Þú kláraðir aldrei verkið
Þú laukst ekki við mig
ekki við okkur….

En ég hef þig með mér
Þú verður í litlu sálinni
Þú verður í draumunum
Þú verður hér, hér, hér hjá mér

Ég veit ég var ekki allt
Ég var ekki fullkomin
Ég var ekki fullgerð
Ég var bara það eina sem hann átti….
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"