Hvernig geta orð
lýst mynd án myndlíkinga ?
Og getur myndin staðið ein
án orða ?

Hvarf ég ?
Eða var ég aldrei…. Nema orðið eitt
Er manneskja án sálar
Manneskja ?
Eða er hún lifandi dauð
Forrituð til að lifa án samvisku

Er sál okkar holdi klædd ?
Og hvernig lítur hún út
Hjarta eða tígull
spaði eða lauf ?

Ég sé ekki fyrir veggjunum
Naprir dagar og gleymdar nætur
Fastur í tómri “hamingju”
Hlekkjaður í eyðingu hugans

Er þetta virkilega
vitund eða dá
Raunveruleiki eða draumu