Þegar allir eru í fínum fötum og þú ert ekki í buxum
skiptir það litlu máli hvað þú segir
það tekur enginn mark á þér
fólk bara horfir:
með fyrirlitningu að þú sért öðruvísi
með öfund útaf því þú þorir
…hetjan mín

Þú ert fyrir ofan alla
á fjallstindinum þar sem grær ekkert nema ísblóm
og sami vindurinn sem blæs í seglin hjá öðrum er að reyna blása þér fram af
máninn manar þig í að stökkva í skýin
skýin segjast ætla að grípa þig, en þau eru örugglega að ljúga
stundum er eins og fallið sé hærra en fjallið
en það er það ekki
…treystu mér

Þarna er ljósastaur sem stendur yfirgefinn með þér
uppljóstraður og hugsi
dansandi við vindinn
óbrjótanlegur því hann kann að bogna
í hann máttu halda þér
hann sleppir ekki
…ég lofa því