Mér líkar ekki vel við 1.p.et. en ákvað að láta eitt svona flaka.

Stundum
Er eins og ég sé munaðarlaus
Ég man ekkert og hef gleymt því að vera til
Hvað þá ég!


Stundum
Er eins og ég brenni að innan
Ég brenn og brenn og ekkert er eftir nema aska
Sem verður dreift yfir Atlantshafið

Alltaf
Finn ég hvernig ég er meira og meira til
Ég hlæ, ég öskra, man og brenn af löngun til alls þess sem ég get ekki fengið en mig langar svo til að geta snert
Flauelsmjúkt skinið sem himnaríki
Fingra minna og á höfði mér
Kóróna