mamma hvernig verða börnnin til+

áður en börnin fæðast
búa þau í ljósalandi,
þar sem allir eru vinir,
allir eru glaðir og góðir.

Ljósaland heitir LJósaland
því fólkið þar býr í holum
djúpt oní jörðinni og þess vegna
þarf allt fólkið þar að vera með ljós.

í ljósalandi eru allir glaðir,
í ljósalandi er svo fallegt,
en þegar þú ert búin að búa
í ljósalandi í 9 mánuði þarftu að flytja.

þegar þú flytur, gleymiru
öllu um ljósaland og þú þarft
að læra að anda og horfa
alveg upp á nýtt.

en þegar þú deyrð
ferðu aftur í ljósaland,
þar sem allt er gott og hlýtt
og allir eru vinir.

og ef ég dey áður en ég vakna
ekki syrgja mig sárt,
því á er ég farin til ljósalands,
þar sem allir eru vinir að eilífu
ekki bara í skitna 9 mánuði.
cecilie darlin