Ég legg á þig álög
þú ert minn.
Segðu ekkert.
Orð eru óþörf.
Þú veist ég elska þig.
Þú ert sæla mín og kvöl.
Uss ekki segja neitt
þó að þú elskir mig ekki
ennþá þá ertu samt minn.
Því þegar við erum saman
skiftir rétt eða rangt engu máli.
Við erum svo fullkomlega
eitt.