Haustið er hálfgerður dauði
ástin er ævilöng áþján þrælslundarinnar
siglir í kaf í sólarlaginu

ef haustið kæmi örlítið seinna
þá hefði ég tíma til að anda
anda að mér bænum



-þar sem ég gleymi mér
og dauðinn kemur
eins og haustið