við sitjum og ræðum málin,
við getum horfst í augu hvers annars án þess að hika,
við tölum um himinsins geima,
um allt sem okkur dettur í hug,
við eigum vel saman segir þú,
við sitjum ánægð um stund,
ekkert getur eyðilagt þessa stund,
ekkert getur aðskilið okkur,
hugsa ég dreymin og horfa kærleiksríkt til hinns aðilans,
skyndilega vakna ég af hugsunum mínum og man,
að við getum ekki átt hvort annað,
við eigum ekki heima í sama heimi,
við vöknum við þessa martröð og grátum þegar við kveðjumst.