fannstu það þegar sólin hneig til sjávar
og hvarf inní óendanlega svarta nóttina
sem gleypir þig
og gleypir?

var þér svarað af tifandi smástjörnum
sem fylltu himinninn hverja einustu nótt
þegar draumar þínir fylltu þig hræðslu
og þú grést
og grést?

eignaðistu von þegar dagur reis á ný
úr kolsvörtu, hyldjúpu hafinu
sem er á milli þín og allra stjarnanna
sem deyja
og deyja