Einn
með bjór í hönd
gengur á milli borða
athugar með sæti
spjallar

Hlátur að baki
háð og spott
“hann er einn
hann er gamall
yfir fertugt”
ungafólkið hlær

Þau skilja ekki
hugsa ekki

Einn
Reynir að spjalla
eignast vini
útskúfaður
sorgmæddur

reynir.