ég sit ein og horfi út um gluggann
hugsa um allt sem hefur gerst
hugsa um þig, hvernig þú varðst minn,
minn að eilífu og alltaf

Vindurinn blæs laufunum um allt
eins og þú blæst hugsunum mínum
ég sé hvernig sólin hverfur ofan í hafið
og hvernig himininn verður svartur án þín

Þú gengur inn í herbergið og lítur á mig
herbergið lýsist upp á svipstundu
kannski afþví að þú kveiktir ljósið
og allt verður gott á ný

Eyrnaslapinn
Love is a game that two can play and both win by loosing their heart.. <3