Hann heyrði hana æpa
og heyrði hana biðja um hjálp.
Hann reyrði hana niður
og fékk sínu fram.

Hann olli henni sári
sem aldrei sést að utan.
Hann barði hana niður
og fékk sínu fram…

…í barnaherberginu hennar.



Vægðarlaus
vargurinn
ráfar um göturnar.

Vitlaus
vargurinn
ráfar um göturnar.

Varnarlaus (!)
vargurinn
ráfar um göturnar okkar
og á meðal vor.

Einhver ætti að taka sig til,
einhver sem hefur þor

og…



-Danni-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.