Það er eitthvað á þessum stað
sem fær mig til að verða ástfanginn.
Er það grasið
sem grænkar við hvern himnadropa
sem á það fellur?

Eru það kannski fuglarnir
sem tala hver í kappi við annan?
Eða kannski er það vatnið
og spegilmynd fjallanna
í kring?

Nei, það er brosið
sem glitrar í tunglskininu
og færir birtu í myrkrinu.
Já, það er brosið er
hvílir á vörum þínum.
sem fær mig til að
til að elska.