Tilfinningin er djúpstæð og vel falin
en geislum hennar stafar um alla sál mína
og þú sérð þeim bregða fyrir í augum mínum
áður en ég lít feimnislega niður

Niðurlút loka ég augunum og bíð
nú veistu allt, ætlar þú að yfirgefa mig
eða getur þú skilið og samþykkt,
hefur sál þín svar við minni þrá?

Löngun mín brennir mig og ég titra
þú átt traust mitt allt en ég vil gefa meira
gætir þú með gleði þegið gjöfina mína,
heilagasta valdið yfir undirgefinni stúlku?