Ég finn enga löngun
löngun til þess
að skrifa þér bréf.

Ég finn enga löngun
til þess að segja þér
frá draumum mínum.

Ég hélt ég hefði losnað
úr fangi þínu
þar sem ég vildi ekki dúsa.

Ég hélt að þú værir farinn
þar sem þú sast ekki í stólnum
sem afi gamli átti eitt sinn.

Ég hélt að ég væri laus
við þig að eilífu,
en svo var ekki.
Súkkulaðihjartað <3