Mín helborna dís

sem sál minn togar,

að sjá þig mín bíða

í stingandi regninu,

rauð og tignarleg

er sólin sem rís.





Áður þegar ég var

ungur og óáreittur,

hljóp um grænt engi.

Reikaði þá hugurinn,

frjáls hann þá flaug

svo ofboðslega langt.





Hún vitjar mín, minningin

þegar ég hitti þig fyrst.

Þokkafull sem hópur

rjóðra yngismeyja.

Þar í laumi þú

merktir mig þinn.





Í faðmi þínum

ég vildi helst felast.

En þróttinn þá þvarr,

hamingjan hún hvarf.

Svarta slæðu yfir

andlit mitt svo lagðir.





Líkaminn naut þess,

en hugurinn gleymdist,

brotinn andi undan leit.

Regnið ei fann mig

og sólin hún hvarf.

Syndin hjá mér settist.





Þegar ég vildi henni fara

í maga minn tók,

hóf í hann að naga.

Lék um mig hitinn.

Syndin hún togaði

svo ofsalega fast.





Og nú bíður þú,

fegurðin tælir,

hugurinn sortnar,

líkaminn skelfur,

andinn bíður.

Hvert verður mitt val?