Já halló!
Ég býð ykkur heim til mín
þar sem húsið er ég
þið ryðjist inn og draslið til
síðan skrúfiði fyrir öllum krönum
vatnið lekur niður

Ykkur leiðist hjá mér
ekkert sjónvarp, aðeins
útvarp sem bara nær gufunni
þannig þið misnotið mig
því ykkur er alveg sama

Fá ykkur í nös og drekkið sterkt vín
Síðan ríðið hver öðrum fram á rauða nótt
Ég get ekkert gert því ég bauð ykkur inn
Þótt það sé kalt þá vona ég að sólin skíni
inn um gluggan og ylji mér

Síðan farið þig og skilið mig einan eftir
hér er ég svo og enginn vill koma inn
þið hafið skilið mig í sárum
það á að rífa mig niður
vondandi þarna uppi verður friðu
————————————————