Frétt
Litlir tíu ára snáðar
sem ástlaus gatan hafði alið
og hvegi áttu höfði sínu að halla
sendir sem leikföng til satista
og fóður fyrir vergjarna kellu hans .

Spurning
Hver bjó um pakkann
lét fylgja með
nýja brúna strigaskó,
græna úlpu frá vetrarhjálp
og blautan kaldan koss
á barnsvanga.

Svar
Heigul pólitísk skipuð smámenni
fóru um stræti og torg
allir skyldi þeir burt.
Burt vestur í afdali
þessir ormar og ótuktir
er væru sem fleinn
í skinheilagri samfélagsmynd
barnaverndar smámenna.