Beint leið til vítis renn
rauður loginn heitur brenn
samviskan mig hvössum teinum stingur
klemmir alla mína aumu fingur.

Ég er dýr
verk mín skýr
orð mín eitruð
í steininn meitluð.

Svíður sál og brennir huga
hefur undir mig að buga
slítur úr mér brunnið hjarta
steypir mér í tómið svarta.

Allslaus í heiminum einn
ber í höfuðið harður steinn
engan að eiga vin
dýr er syndin mín.

Einn og allslaus mun ég deyja
erfitt er þetta líf að þreyja
lík mitt í tómi að rotna
ill sál í tómi að brotna.

Svíður sál og brennir huga
hefur undir mig að buga
slítur úr mér brunnið hjarta
steypir mér í tómið svarta.
—–