Það hljóðnar í höfðinu
eftir langan dag
erill hugsana minna
kyrrast sem fiðrildi
sem sest niður
í sólinni
til að teiga orku
hvíla vængina

Margbrotnir litirnir
speglast í auga kattarins !