Fyrir mér breittist allt á einum degi,
Allt verður líflaust og tilgangslaust og ekki þess virði að horfa á,
Heimurinn verður smærri á meðan stendur,
Tækifærin sem bjóða uppá svo margt og mikið verða að engu,
Á meðan öllu þessu stendur hugsa ég um þig,
Um mjúkar hendur þinar sem ég ávalt þrái,
augu þín ljúf og falleg,
varir þínar svo mjúkar og fullar af lífi,
búk þinn sem er svo heitur og fullur af óstjórnlegri þrá,
Ég hugsa um þig.

Ég vakna upp af hugsunum mínum,
Ég horfi í kringum mig og sé ekkert nema eymd og vesæld,
Ég hverf aftur til hugsana minna og horfi á þig,
Ég vildi aðeins að þú værir til,
Ekki bara ljúfur draumur sem kemur og huggar mig
Í gegnum nætur sem eru svo fullar af þjáningu í leit af þér
Eða þínum líkum.

En svo vakna ég og hverf aftur til raunveruleikans,
Svo fullur af vonbrigðum,
Bara að mjúkar hendur þínar vræu um kringdar um mig,
Um ljúf augu þín sem horfðu á mig með kærleik,
Bara að þú værir til……………………