Hve undarlegt það er
að vilja elska,
finna þann rétta…..
Hve undarlegt það er
að bíða, og vona
einn daginn svo upplifa,
eitthvað sérstakt….

Lífið hefur jú sína kosti
sína galla,
sú raun að langa að elska
er þó best, verst þeirra allra…

Að þrá og vilja
það sem flesum virðist gefið
en geta aðeins beðið
að það komi fyrir mig,
svo undarleg líðan
á mig kallar núna….
sem vefst um huga mér.

Hverstu löng verður biðin
hversu erfið sú þraut,
kannski aðeins ævintýri
sem aldrei mun í verunni
verða að raun..

jú ástin á sinn stað
sannleikur er það..
stað sem hjartað geymir
stað sem enginn gleymir….
- eða hvað? -