Mitt eitt og allt Til Aðalsteins

Það er svo margt, sem í huga okkar býr
minningar um fortíð, sem enginn okkar flýr.
Þá opnast hjartað, sem löngu glatað var
hugljómun frá heilun, veitir langþráð svar.

Þú ert ástin mín, þú ert mitt eitt og allt
þráður lífs míns, sem áður var svo kallt.
Við göngum saman, lífsins langa veg
leyfum hjörtunum að slá, saman þú og ég.

Hver dagur með þér, er fylltur ást og yl
andartak sem eilífð, yndislegt að vera til.
Mitt hjarta, mun þig virða ástin mín
elska, lofa og biðja – ég er aðeins þín.


11.jan.2007
Særún Reynisdótti