Einmana stendur þú
á skiptistöðinni
síðasti vagninn væntanlegur

blóðrauð ský sigla
hratt í átt
að sólarlaginu
og þú lítur
í hinsta sinn
á átt til barna þinna

síðasti skiptimiðinn
milli fingra þér

Þreyttur stígur
þú um borð
og vagninn líður
út í nóttina