ef það væru dyr
að draumum þínum
myndi ég ganga inn
og baða mig í sólskini
drauma þinna

og ef það væri til lykill
að þessum dyrum
myndi ég ganga inn
og læsa á eftir mér

halda raunveruleikanum
fyrir utan
með sinn kalda snjó
og svarta myrkur
fyrir utan dyrnar að draumum þínum

nei!
-ég myndi ganga inn
og læsa
til að enginn annar kæmist inn

ef það væru dy