kapítalisminn ræður nú ríkjum
ringluð veröld í sundur klofnar
við sjálfstæði við soraháttinn líkjum
sár öreiginn sveltur og dofnar…

þeir kalla það góðæri nú
þegar sá ríki brosað getur
davíð reisir sér roknastór bú
rýkur þar sælan um vetur…

betlarinn biður um vatn og fæði
blítt á svip auðvaldið neitar
því er þetta ekki hreint einræði
þegar barnið í kuldanum leitar?

því segi ég - áfram lýður
og rís upp mót þessum öflum!!!
handan hæðanna frelsið bíður
hafið þar steikur á göflum!!!

fylgið mér fljótt - sundraða þjóð
frá davíð þið fáið ei neitt!!!
um æðar mér rennur hefndarblóð
og í hamsi er mér nú heitt!!!

úr kulda og vosbúð við stígum
von þið öðlist hjá mér
á kapítalistana við mígum
kommúnan mun ríkja hér!!!


-(komma)pardus-


Vil taka það fram að ég er ekki kommúnisti - ég er sósíalisti ;) Lét þetta meira inn í djóki heldur en sem áróður ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.