Golan sem feykir hári þínu

Sjáðu goluna!
Goluna sem blæs frá vatninu
og feykir hári þínu til.
Þessi gola hefur töframátt.
Þegar hún speglast úr augum þínum,
verður bros þitt fegurra
en ljós norðursins,
sem dansar á himninum
fegurð þinni til heiðurs.