smáauglýsingar:

ég hef hug á að finna
sálufélaga…
hann skal vera eftirfarandi:
hár, grannur og ljóshærður
með blá augu og tilfinninganæmur,
en samt karlmennskulegur,
hann á að geta staðið á höndum,
og sofið með annað augað opið.
og verndað mig fyrir öllu illu.

hann á að keyra bíl
eins og michel schumacher
og vera frábær í rúminu.
þeir sem ekki standast þessar kröfur eru aumingjar
og hinir eru lygarar.
cecilie darlin