bætið við ef þið viljið =o)

geystist út dyrnar ferskur og hreinn
flaug niður tröppurnar orðinn of seinn

ekki mun strætóinn hanga og bíða
hleyp áfram fer í vöðvana að svíða

þýt fram hjá bakarí ilmurinn tælir
þýt gegn vindinum rigningin kælir

bruna að torginu niður úr þingholtunum
stekk upp í strætóinn, úff ég náðonum!
—–