mig langar að standa fyrir utan glugga þinn
í kulda og vætu þar til þú hleypir mér inn
starir aftur í augu mín og brosir við mér skært
… bros þitt er mér kært …

mig langar að faðma þig að mér og finna þitt hár
grafa mig djúpt inn í þig og þerra mín tár
sú tilfinning að finna húð þína strjúkast við mína
… ég áður vildi sárt týna …

mig langar að vakna upp um nætur til að sjá
að allt það góða í lífi mínu - er enn mér hjá
draga þig að mér og sofna aftur kátur
… laus við minn grátur …

en ég stend hér enn fyrir utan gluggann í snæ
og enga inngöngu í sálu þína nokkurn tíma fæ
inn um gluggann ég stari á þig faðma hann
… stúlkan sem ég eitt sinn ann …

ég hreyfi mig úr sporunum sem ég hef staðið í
því ég sé að þú aldrei gætir elskað mig á ný
þó hafi ég staðið hér svo mánuðum skiptir
… tókstu mínar ástartaugar - og klipptir …



gamall draugur bankaði á hjarta mitt kátur
vakti upp hjá mér löngu gleymdan hlátur
hann er nú horfinn aftur - kemur ei meir
… og ást mín til hennar trosnar og deyr …



óskir um gleði og kæti ég til þeirra sendi
og vona að hamingja þeirra aldrei endi
því þó ég sé núna örlítið leiður og sár
… vonandi lifið þið sæl - ókomin ár …


kveðja… Danni ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.