Þú varst í draumi mínum í nótt.
Nafn þitt bergmálaði milli hamranna,
Margarita, Margarita.

Safarík og tælandi,
lokkaðir þú mig að þér.
Breiddir út faðma þína
og bauðst mér að smakka
á ljúffengu kjöti þínu.

Bragðið tónaði inní mér.
Það öskraði á nafn þitt,
Margarita, Margarita.