Líðum áfram
í unaðsdraumi…
hönd mín á þinni
og augu okkar mætast.

Þú grípur um mitti mér
og leiðir mig áfram.
Óstyrkir fætur mínir
elta skref þinna.

Þú sveiflar mér hring eftir hring
og brátt
styrkjast skref mín
og fylgja takti lagsins
ósjálfrátt.

Augu mín elta þín
og óttast ekkert,
því ég fell ekki
á meðan armar þínir
umlykja mig…


Æi, þegar ég sé þetta svona þá virðist þetta ekkert sérstakt ljóð
lengur… Æi, vott ðe hekk, ég dey ekki þó ég sendi inn lélegt
ljóð. Þetta var bara svona tilfinning sem ég fékk þegar ég hlustaði
á eitt lag með Buena Vista Social Cl