Baráttan hefst,
ósýnileg en raunveruleg,
vígvöllurinn ég sjálfur.

Hugsanir, hugmyndir, tilfinningar,
hvað er rétt, hvað er rangt?

Hart er barist og
mikið er í húfi.

Aðeins eitt situr eftir,
ég,
týndur og brotinn.

Hvað var eiginlega að gerast?