Skoðaði í morgun
hugsanir fólks
sem ég þekki
og líka ekki.

Marg var mér
framandi en
annað ekki.

Ég vissi eitt
og annað ekki
en fólkið
tók mér illa
í huga sínum,
þar á ég ekki
heima.

Ekkert er fallegra
en hrein hugsun,
en þær fann ég
hvergi því ég
blandaði allar þær
sem ég skoðaði.