Líkt og

Jú Ess Ey er gósenland
lögfræðinga og sjónvarpsklerka,

Frakkland er útópía
listaspíra og matgæðinga,

Ítalía er draumapleis
letibykkja og sóldýrkenda

er heili minn helvíti
uppskafninga og sannkristinna,

pottþéttur griðastaður
klámleikkvenna og partýfíkla,

og stærðar atvinnuvegur
sálfræðinga og særingarmanna.



-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.