ég horfi í augu þín,
þau eru skærblá og falleg,
ég hlæ því ég veit
að þú brosir líka
innst inni.

og þó þú sért sorgmædd,
og grátir úr þér augun,
þá veit ég það seinna
finnuru fyrir ró
sem breiðist út í hjarta þínu.

ég horfi á þig sofa
draumlausum svefni
svo vært
að jafnvel englar,
gætu ekki verið fegurri en þú.

ég veit að ég elska þig
en innst inni
hata ég þig líka
því þú ert svo falleg
að þú stelur burt athygli minni.

ég veit að þér var nauðgað
þó þú segir mér það ekki
því þessi endalausu böð
og tal um að þú sért skítug,
segir mér bara eitt.

gráttu bara það er gott
pabbi þinn var skíthæll
en nú er hann farinn
í fangelsi og þótt að hann verði,
þar bara í nokkur ár drepum við hann bara.
cecilie darlin