…Líkamsleifar…

…öll rauð blóðkorn… ósynd
…öll hvít blóðkorn… blind
…sýklar sleppa inn - í líkama minn
…og fullkomna brátt þessa hryggðarmynd…

…allar vöðvafrumur… rýrar og dofnar
…allar sinar… slitnar og rofnar
…lífið út fjarar - ég bíð himnafarar
…um leið og augun lokast og hann sofnar…

…veikur í rúminu… dofinn
…aleinn í húminu… ósofinn
…því ég innbyrti eitur - slappur og feitur
…nú fell ég frá leiður og klofinn…

-pardus-

Mér datt þetta einhvern veginn í hug um daginn þegar ég var slappur (á líkama - ekki sál ;)) og þess vegna samdi ég þetta :)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.